Tuesday, December 18, 2007

haustáform um vetrarferðalag

Á morgun fara Amsterdam miðarnir á Neil Young í sölu. Ég ákvað að bíða eftir nýju kortatímabili þegar Hammersmithfernan fór í sölu, en þegar Neil Young er annars vegar þýðir hik sama og tap, og allir bestu miðarnir runnu út á klukkustundum. En eftir kyrjun og umhugsun ákvað ég að sleppa Njáli fullviss um að við eigum síðar eftir að sjást.

Orðrómur er um Tom Waits túr svo það er eins gott að setja í varasjóð.

En maður getur auðvitað ekki svekkt sig, eigandi miða á Iron and Wine tónleika í Mílanó og Ítalíu. Aldrei að vita nema maður rekist aftur á Danna á horrorkaffi. Það væri ekki ónýtt.

http://dannmilano.bloggar.is/

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home